Verklagsleiðbeiningar um flutning  þungaðra kvenna með sjúkraflugi

Byggð á leiðbeiningum um sjúkraflug með þungaðar konur, nýbura og ung börn, sem áður hafa verið tiltækar á sjúkraflug.is

Tilgangur leiðbeininganna er að gera útkall, undirbúning og framkvæmd sjúkraflutninga eins markvissa og örugga og hægt er. Í skjali þessu er að finna upplýsingar um eftirfarandi:

  1. Sjúkraflug með þungaðar konur.
  2. Útkall í sjúkraflug.
  3. Lyfjameðferð þungaðra kvenna.
  4. Gátlisti vegna sjúkraflutnings þungaðra kvenna.
  5. Mikilvæg símanúmer.

1. Sjúkraflug með þungaðar konur

Þessir flutningar eru á margan hátt sérstakir. Mögulega þarf að fást við fleiri en einn veikan einstakling samtímis og lyf og útbúnaður um margt frábrugðinn því sem notað er við aðra sjúkraflutninga.

Við undirbúning þarf að reyna að meta hversu alvarlegt ástandið er og miða viðbúnað við það. Ef hætta er á að barn/börn fæðist fyrir eða í flutningi þarf að tryggja að hægt sé að sinna bæði móður og barni/börnum. Þetta þýðir í raun að það þarf stundum að taka með auka mannskap og útbúnað ætlaðan barninu/börnunum. Í þeim tilfellum er vísað í samsvarandi leiðbeiningar um sjúkraflug með nýbura. Í þeim tilfellum er nauðsyn að fæðingalæknir og nýburalæknir hafi náið samráð.

2. Útkall í sjúkraflug

Skilgreiningar um forgang útkalla:

F1: Lífsógn. Útkallstími eins stuttur og hægt er. Útkall tekið fram fyrir önnur útköll. Læknir með.

F2: Möguleg lífsógn. Útkallstími innan við 35 mínútur. Almennt ekki frestað nema í samráði við fluglækni. Læknir með nema annað sé tekið fram.

F3: Útkallstími 35 mínútur og allt upp í 6 klukkustundir en strax ef ekki annar flutningur í gangi, annars strax þegar honum lýkur. Læknir aðeins með ef óskað er.

F4: Eftir samkomulagi. Læknir aðeins með ef óskað er.

Helstu ástæður fyrir sjúkraflutningi þungaðra kvenna:

  • Yfirvofandi fyrirburafæðing, með eða án legvatnsleka
  • Fæðingarsótt við fulla meðgöngu, en móðir á óæskilegum stað
  • Langdregin fæðing án aðstæðna til sértækrar aðstoðar
  • Blæðing (fyrirsæt fylgja, fylgjulos)
  • Meðgöngueitrun (pre-eclampsia/eclampsia)
  • Áverkar á þungaðri konu
  • Aðrir sjúkdómar hjá þungaðri konu

Við sjúkraflutning konu á meðgöngu er mikilvægt að halla konunni yfir til vinstri t.d. með því að setja púða undir hægri hlið hennar. Við þetta færist legið af vena cava inferior.

Læknir sem biður um sjúkraflug fyrir þungaða konu á að hafa samráð við vakthafandi sérfræðing á fæðingadeild Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) áður en flug er pantað. Taka þarf afstöðu til þess hvort nauðsynlegt sé að fæðingalæknir, barnalæknir eða ljósmóðir fari í flugið. Ennfremur hvort nauðsyn sé að hafa meðferðis lyf eða áhöld sem eru að jafnaði ekki í sjúkraflugvélinni. Mikilvægt er að hafa samráð við ljósmóður eða lækni á staðnum sem getur metið ástand konunnar fyrir flug í samráði við fæðingalækni á SAk, eða tekið á móti barni ef til fæðingar kemur. Fæðing á jörðu niðri er ávallt betri kostur en fæðing í háloftum.

Ef það er niðurstaða fæðingalæknis og læknis sem biður um flug (pantar) að þörf sé á fæðingalækni og/eða barnalækni í flugið þá þarf læknirinn að koma boðum um það til Slökkviliðs Akureyrar þegar flug er pantað.

  • Fæðingalæknir: Vakthafandi fæðingalæknir á SAk fer í útkallið eða staðgengill hans.
  • Ljósmóðir: Vaktstjóri ljósmæðra á fæðingadeild SAk útvegar ljósmóður til að fara í flugið.
  • Barnalæknir: Ef fæðingalæknir á SAk telur líkur á að barn fæðist fyrir flug eða í flugi er almenna reglan sú að haft er samband við vakthafandi sérfræðing á Vökudeild Barnaspítala Hringsins sem gefur ráð og útvegar sérfræðilækni ef þörf er talin á.